„Ætli ég fari ekki bara til sjós aftur, fái ég einhvers staðar pláss,“ sagði Grétar Mar Jónsson sem féll af þingi með öðrum þingmönnum Frjálslynda flokksins.
Grétar Mar hefur enga trú á að þetta kjörtímabil verði fjögur ár. Að öllum líkindum springi stjórnarsamstarfið við fjárlagagerðina í haust. Verði kosið fljótlega býst hann við að bjóða sig aftur fram.