Björgvin G. Sigurðsson, oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi, segist mjög ánægður með niðurstöður kosninganna fyrir sinn flokk. Björgvin var viðskiptaráðherra þegar bankarnir hrundu í október síðastliðinn og sagði af sér ráðherradómi fyrr á þessu ári, en hefur endurnýjað umboð sitt innan Samfylkingarinnar síðan þá.
Hann kveðst ekki óttast miklar útstrikanir. ,,Það kemur bara í ljós. Ef einhver er óánægður með skipan listan er það aðferðin sem fólk notar." Þá sagðist hann ekki taka það persónulega verði hann mikið strikaður út af listanum.