Stjórnarmyndunarviðræður hófust rétt fyrir klukkan tvö í Norræna húsinu. Ráðherrarnir voru bjartsýnir þegar þeir komu á fundinn.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra telur enga þörf á því að kalla aðra flokka til samstarfs við ríkisstjórnina en vilji hefur verið fyrir því innan hluta Samfylkingarinnar að Framsóknarflokkurinn komi að ríkisstjórninni. Jóhanna segir að það þokist vel áfram í samkomulagsátt. Í dag eru ríkisfjármál og staða heimilanna rædd. Fjármálaráðherra segir mikinn vilja til staðar, það sé ekki allt en mjög mikið. Sjá MBL sjónvarp.