Þingflokkur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs hefur verið boðaður til fundar nú klukkan fjögur. Ræddur verður sáttmáli nýrrar ríkisstjórnar og væntanlega skipting embætta, ráðherrastóla og nefnda Alþingis.
Flokksráð VG kemur saman til fundar klukkan 9 í fyrramálið og ræðir stjórnarsáttmálann og í kjölfarið kemur þingflokkur VG saman á ný.