Haraldur Eyvinds Þrastarson, viðskiptafræðingur, gefur kost á sér í fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar, en prófkjörið fer fram þann 7. nóvember næstkomandi.
Haraldur sat lengi í Íþrótta og tómstundaráði Seltjarnarness og hefur starfað með íþróttafélaginu Gróttu. Haraldur hefur búið á Seltjarnarnesi frá 3ja ára aldri.
Haraldur er kvæntur Ástu Sigvaldadóttur, stuðningsfulltrúa við Valhúsaskóla og eiga þau tvö börn. Haraldur starfar sem deildarstjóri hjá Skiptum hf.