Fimmtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi fyrir bæjarstjórnarkosningarnar næsta vor en framboðsfrestur rann út um síðustu helgi. Prófkjörið fer fram laugardaginn 7. nóvember.
Eftirtalin gefa kost á sér:
Ásgerður
Halldórsdóttir
Bjargey
Aðalsteinsdóttir
Bjarni Dagur
Jónsson
Bjarni Torfi
Álfþórsson
Björg Fenger
Guðmundur
Magnússon
Haraldur Eyvinds
Þrastarson
Helgi Þórðarson
Katrín Pálsdóttir
Lárus B. Lárusson
Magnús
Margeirsson
Magnús Örn
Guðmarsson
Ragnar Jónsson
Sigrún Edda Jónsdóttir
Þór
Sigurgeirsson.
Prófkjörið mun fara fram í sal Sjálfstæðisflokksins á Seltjarnarnesi að Austurströnd 3, 3ju hæð frá kl. 10 til 18. Utankjörstaðakosning hefst mánudaginn 26.október n.k. Hægt verður að kjósa á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins í Valhöll á skrifstofutíma frá kl. 9 til 17 alla virka daga.
Kjörnefnd mun standa fyrir sameiginlegum framboðsfundi í Valhúsaskóla miðvikudaginn 4. nóvember n.k. kl.19.30 til 22.