13 í framboði hjá Samfylkingunni á Akureyri

Alls taka þrettán þátt í prófkjöri Samfylkingarinnar á Akureyri en framboðsfrestur rann út á miðnætti. Prófkjörið fer fram rafrænt 29.-30. janúar og er opið öllum kosningabærum einstaklingum í sveitarfélaginu á kjördag í vor. Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri býður sig einn fram í fyrsta sæti listans.

Eftirfarandi einstaklingar hafa boðið sig fram:

 

Guðgeir Hallur Heimisson, bókari, sæti 3-5

Helena Þ. Karlsdóttir,  lögfræðingur, sæti 3

Hermann Jón Tómasson, bæjarstjóri, sæti 1

Jóhann Jónsson, markaðsstjóri, sæti 4

Jón Hjaltason, sagnfræðingur, sæti 2-3

Jón Ingi Cæsarsson, dreifingarstjóri, sæti 3-5

Linda María Ásgeirsdóttir, ferðamálafulltrúi, sæti 3-5

Logi Már Einarsson, arkitekt, sæti 2

Pétur Maack Þorsteinsson, forstöðusálfræðingur, sæti 3

Ragnar Sverrisson, kaupmaður, sæti 4

Sigrún Stefánsdóttir, sölu- og þjónustufulltrúi, sæti 2

Valdís Anna Jónsdóttir, þjónustufulltrúi, sæti 3-5

Þorlákur Axel Jónsson, menntaskólakennari, sæti 3-5

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert