Gleðitíðindi segir Júlíus

Júlíus Vífill Ingvarsson.
Júlíus Vífill Ingvarsson.

„Þetta eru mikil gleðitíðindi fyrir mig og mína fjölskyldu,“ sagði Júlíus Vífill Ingvarsson borgarfulltrúi, en hann hlaut annað sætið í prófkjöri sjálfstæðismanna sem lauk í dag.

„ Ég er mjög þakklátur mínum vinum og vandamönnum sem skiluðu þessari niðurstöðu. Ég þakka borgarbúum fyrir að sýna að þeir kunna að meta mín verk í borgarstjórn.

Það er sigurstranglegur listi sem út úr þessu prófkjöri kemur. Ég hef mikla trúa á að hann komi til með að færa okkur sigur í borgarstjórnarkosningunum næstkomandi vor,“ sagði Júlíus Vífill.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert