Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, kennari og bæjarfulltrúi, mun áfram leiða lista Vinstri grænna í Hafnarfirði fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Félagsfundur samþykkti í fyrrakvöld tillögu uppstillingarnefndar um röðun ellefu efstu manna á listanum. Jón Páll Hallgrímsson, smiður og varabæjarfulltrúi, er í öðru sæti.
Aðrir á lista VG í Hafnarfirði eru: 3. Jóhanna Marín Jónsdóttir sjúkraþjálfari. 4. Gestur Svavarsson verkefnastjóri. 5. Birna Ólafsdóttir skrifstofustjóri. 6. Árni St. Jónsson, formaður SFR-stéttarfélags. 7. Arndís Pétursdóttir, verkstjóri fanga. 8. Sigurður Magnússon matreiðslumaður. 9. Klara Hallgrímsdóttir grunnskólakennari. 10. Nanna Pétursdóttir tölvutæknifræðingur. 11. Gísli Ásgeirsson þýðandi.