Í könnun blaðsins Frjálsrar verslunar fyrir vefsvæðið heimur.is dagana 5.-10. febrúar mældist Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi eða um 35%. Vinstri grænir mældust með með 26%, Samfylkingin með 22% og Framsóknarflokkurinn 15%.
Aðrir fá 2%. Það voru Frjálslyndi flokkurinn, Hreyfingin, Borgarahreyfingin og Besti flokkurinn.
Alls voru 636 spurðir í könnuninni. 36% voru óviss eða vildu ekki svara, Um 6% ætla
ekki að kjósa eða skila auðu. Vikmörk eru +/-5%.