Ólafur Þór Gunnarsson er í fyrsta sæti þegar öll atkvæði í forvali Vinstri grænna í Kópavogi hafa verið talin. Guðný Dóra Gestsdóttir er í öðru sæti, Karólína Einarsdóttir í því þriðja, Guðbjörg Sveinsdóttir í fjórða sæti, Arnþór Sigurðsson í því fimmta og Hreggviður Norðdahl í því sjötta.
Í tilkynningu frá Vinstri grænum segir að kjörsókn hafi verið góð, eða
42,36%. Ólafur hafi verið mjög afgerandi í fyrsta sæti.