Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ stóðu fyrir prófkjöri í dag vegna bæjarstjórnakosninganna 2010. Á kjörskrá voru 2902 og greiddu 1621 atkvæði. Kjörsókn var því um 56%. Árni Sigfússon, bæjarstjóri og núverandi oddviti sjálfstæðismanna í Reykjanesbæ fékk yfirburðakosningu í 1. sætið eða 92% atkvæða.
Úrslit 7
efstu frambjóðenda eru sem hér segir:
1.
Árni Sigfússon með 1378 atkvæði í 1. sæti
2. Gunnar Þórarinsson með 704 atkvæði í 1.-2. sæti
3. Böðvar Jónsson með 703 atkvæði í 1.-3. sæti
4. Magnea Guðmundsdóttir með 709 atkvæði í 1.-4. sæti
5. Einar Þ. Magnússon með 774 atkvæði í 1.-5. sæti
6. Baldur Guðmundsson með 1048 atkvæði í 1.-6. sæti
7. Björk Þorsteinsdóttir með 965 atkvæði í 1.-7. sæti
Aðrir hlutu færri atkvæði.
Auðir og ógildir seðlar voru: 66