Gallup: Ánægja með Hönnu Birnu

Hanna Birna Kristjánsdóttir
Hanna Birna Kristjánsdóttir

Meirihluti borgarbúa er ánægður með störf Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra. Þetta kemur fram í nýrri viðhorfskönnun Capacent Gallup sem unnin var fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjavík. Samkvæmt könnuninni eru 74% kvenna ánægðar með störf borgarstjóra en alls eru 65,5% ánægðir með störf Hönnu Birnu.

Í úrtaki voru 891 manns í Reykjavík, 18 ára  og eldri, handahófsvaldir úr viðhorfahópi Capacent Gallup, og var svarhlutfall 60,6%. 
 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert