Telur að Gamla kaupfélagið eigi að fara

Þingeyri
Þingeyri Af vef Bæjarins besta

Halldór Halldórsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar hefur óskað eftir afstöðu bæjarráðs til þess hvort ekki mega auglýsa Gamla kaupfélagshúsið á Þingeyri til sölu að nýju eða ganga til samninga við þá sem buðu í húsið þegar það auglýst til sölu í fyrra.

Forsaga málsins er sú að 2009 ákvað bæjarráð að fresta því að taka afstöðu til kauptilboða í Gamla kaupfélagið á Þingeyri þar til fyrir lægi hver framtíðarstaðsetning hússins yrði. Í framhaldi af því var ákveðið að fá álit íbúasamtakanna Átaks sem töldu að húsið ætti að vera áfram á núverandi stað. Ákveðið var síðan að fara í deiliskipulagsvinnu og því frestað að taka afstöðu til tilboðanna og afstöðu íbúasamtakanna.

Samkvæmt bréfi bæjarstjóra sem tekið var fyrir á bæjarráðsfundi á dögunum hefur hann fengið ítrekaðar fyrirspurnir um húsið. „Staða málsins er sú að undirbúningur að deiluskipulagi stendur yfir. Vinnan er í höndum landslagsarkitekts sem búsettur er á Þingeyri. Halda þarf opinn fund á Þingeyri til að fá fram afstöðu íbúanna og sem flestar hugmyndir. Þ.á.m. hver er besta staðsetningin fyrir Gamla kaupfélagið,“ segir í bréfi Halldórs.

Þar segir líka að hann velti því fyrir sér hvort nauðsynlegt sé að bíða eftir þeirri niðurstöðu. Hann spyr hvort ekki sé hægt að taka afstöðu til kauptilboðanna eða auglýsa húsið að nýju á þeim forsendum að það verðir staðsett í samræmi við endanlega deiliskipulag.

„Það er mat undirritaðs að húsið eigi ekki að vera þar sem það er nú vegna nálægðar við salthúsið sem nú hefur verið endurbyggt. Stutt er á milli húsanna þannig að vegna brunahættu geta skapast vandamál, en ekki síður vegna þess að Gamla kaupfélagið nýtur sín ekki nógu vel þar sem það er staðsett í dag,“ segir í bréfi Halldórs.

Bæjarráð hefur falið bæjarstjóra að kalla eftir upplýsingum um stöðu deiliskipulagsvinnu á Þingeyri og leggja fyrir næsta fund bæjarráðs.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert