Stjórn Svæðisfélags Vinstri grænna á Héraði, Borgarfirði eystri og Seyðisfirði krefst þess að þeir alþingismenn sem þáðu háa styrki frá einkaaðilum í aðdraganda kosninga til sveitarstjórna árið 2006 og til Alþingis árið 2007 víki sæti.Þetta kemur fram í ályktun stjórnarinnar.
„Þó gerðir viðkomandi alþingismanna kunni að hafa rúmast innan marka þeirra laga sem þá giltu um styrki til stjórnmálamanna eru þeir algerlega á skjön við það siðferðismat sem nú er uppi og þær reglur sem nú gilda varðandi samband viðskiptalífs og stjórnmála.
Traust á Alþingi og stjórnmálamönnum hefur beðið hnekki og það mun ekki verða endurreist meðan þeir stjórnmálamenn sem þáðu háar fjárhæðir frá fyrirtækjum, sem mörg hver eru nú til rannsóknar vegna efnahagsbrota, sitja sem fastast á Alþingi. Sú staðreynd grefur jafnframt undan trú almennings á lýðræðinu og ýtir undir það útbreidda viðhorf að trúnaður stjórnmálamanna sé eingöngu við sinn flokk og sína styrktaraðila en ekki við fólkið í landinu."