Listi Kópavogsbúa, er nefnir sig svo, kom fram í dag þegar frestur til að skila inn framboðum rann út. Oddviti listans er Rannveig Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri. Meðal baráttumála listans er að bæjarstjóri verði faglega ráðinn og bæjarfulltrúar sitji í mesta lagi tvö kjörtímabil.
Vill listinn ennfremur að farið verði eftir siðareglum Kópavogs og unnið verði að því að persónukjör verði að veruleika
Listinn er þannig skipaður:
1. Rannveig H. Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri
2. Guðmundur Freyr Sveinsson aðstoðarskólastjóri
3. Una Björg Einarsdóttir verkefnastjóri4. Hreiðar Oddsson kennari
5. Hanna Dóra Stefánsdóttir þroskaþjálfi6. Héðinn Sveinbjörnsson rekstrarstjóri
7. Eiríkur Ólafsson kennari8. María Kristófersdóttir matráður
9. Anna Guðný Einarsdóttir björgunarsveitarmaður10. Borghildur Þorgeirsdóttir hárgreiðslukona
11. Vilhjálmur Einarsson fasteignasali12. Ásdís Ólafsdóttir íþróttakennari