„Viss um að við fáum meira fylgi"

Sóley Tómasdóttir oddviti Vinstri grænna.
Sóley Tómasdóttir oddviti Vinstri grænna. Heiðar Kristjánsson

„Við Vinstri græn höfum bæði toppað og botnað á hinum ýmsu stöðum í könnunum," segir Sóley Tómasdóttir oddviti Vinstri grænna í borgarstjórn. 

Samkvæmt könnun Miðlunar fyrir Morgunblaðið fá Vinstri græn 6,3 prósent og einn mann í borgarstjórn. Vinstri græn eru nú með tvo borgarfulltrúa.

„Við ætlum bara að vera dugleg þessa síðustu daga að kynna okkar stefnu fyrir borgarbúum og þá er ég alveg viss um að við fáum meira fylgi en þetta," segir Sóley.   
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert