Besti flokkurinn fær sex borgarfulltrúa samkvæmt könnun, sem Capacent gerði fyrir Ríkisútvarpið. Sjálfstæðisflokkurinn fær fimm borgarfulltrúa samkvæmt könnuninni, Samfylkingin þrjá og Vinstri grænir einn. Flestir vilja sjá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í borgarstjórastóli.
Innan við helmingur kjósenda Vinstri grænna, Framsóknarflokksins og Samfylkingar árið 2006, ætla að kjósa sömu flokka nú, samkvæmt könnuninni.