Fulltrúar flokkanna sex sem fengu fulltrúa í bæjarstjórn Akureyrar í kosningnunum settust saman á fund nú eftir hádegið. L-listinn fékk hreinan meirihluta, sex bæjarfulltrúa af 11, og því er ekki um að ræða fund um meirihlutasamstarf en vilji er til þess að stilla saman strengi eins og hægt er, m.a. varðandi skipan í nefndir bæjarins.
Meðfylgjandi mynd var tekin við upphaf fundarins. Frá vinstri: Edward H. Huijbens VG, Halla Björk Reynisdóttir og Geir Kristinn Aðalsteinsson frá L-listanum, Hermann Jón Tómasson Samfylkingunni, Guðmundur B. Guðmundsson Framsóknarflokki, Ólafur Jónsson Sjálfstæðisflokki og Sigurður Guðmundsson frá Bæjarlistanum.