Framsóknarfélag Seyðisfjarðar hefur sent frá sér ályktun þar sem mótmælt er harðlega ásökunum Guðmundar Steingrímssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, í garð forystu flokksins vegna lélegs árangurs á höfuðborgarsvæðinu og þá einkum í Reykjavík.
„Ástæðu fylgistapsins má fyrst og fremst rekja til þess að framsóknarmenn í Reykjavík hafa ekki borið gæfu til að starfa saman af heilindum eins og í öðrum flokksfélögum.
Því skorar Framsóknarfélag Seyðisfjarðar á framsóknarmenn í Reykjavík að slíðra sverðin og taka höndum saman um að framfylgja stefnu flokksins í þágu þjóðarinnar stað þess að vera í stöðugum erjum vegna meintra persónulegra hagsmuna," segir í ályktuninni, sem samþykkt var í dag.