Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi og oddviti Samfylkingarinnar ræðir niðurstöðu kosninganna og segir frá viðræðum við Besta flokkinn um hugsanlegt meirihlutasamstarf á opnum félagsfundi Samfylkingarfélaganna í Reykjavík í húsnæði Samfylkingarinnar að Hallveigarstíg í kvöld.
Fundurinn hefst kl.20.30 og er öllum opinn að því er fram kemur á vef Samfylkingarinnar.