Nýr meirihluti útilokar ekki hækkun útsvars

Jón Gnarr tekur við lyklavöldum að borginni þann 15. júní næstkomandi. Tíminn fram að því verður nýttur til þess að klára málefnavinnu, ræða við starfsfólk borgarinnar um ýmis mál og skipa í ráð og nefndir. Hækkun útsvars er ekki á dagskránni en þó ekki útilokuð.

Dagur B. Eggertsson kynnti nýjan borgarstjóra á blaðamannafundi sem haldinn var á heldur óvenjulegum stað, á þaki Æsufells 4 í Fellahverfi í Breiðholti. Jón Gnarr, nýr borgarstjóri Reykjavíkur, sagðist ætla að vera skemmtilegur borgarstjóri.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert