Óskar Kristinsson er eldri bróðir Jóns Gnarr Kristinssonar verðandi borgarstjóra. Hann hefði ekki grunað fyrir 20 árum að litli bróðir yrði borgarstjóri. „Nú er hann orðinn stóri bróðir,“ segir Óskar í samtali við mbl.is á þaki Æsufells.
Óskar hefur búið í Æsufellinu lengi og þótti góð hugmynd hjá bróður sínum að halda blaðamannafundinn á þakinu. Hann segist engum treysta betur til að vera borgarstjóri.