Eiríkur Björn Björgvinsson hefur verið ráðinn bæjarstjóri á Akureyri skv. heimildum Fréttavefjar Morgunblaðsins. Eiríkur Björn hefur verið bæjarstjóri á Fljótdalshéraði undanfarin ár en var áður deildarstjóri íþrótta- og tómstundadeildar á Akureyri á árunum 1996 til 2002.