Við framboðsfrests á hádegi 18. október sl. höfðu landskjörstjórn borist 525 framboð til stjórnlagaþings. Frambjóðendur skiptast þannig eftir kynjum að konur eru 159 og karlar 366.
Í tilkynningu frá landskjörstjórn segir, að nú sé unnið að því að koma á framfæri ábendingum til einstakra frambjóðenda um úrbætur á framboðum þeirra.
Landskjörstjórn kemur saman til fundar mánudaginn 25. október nk. til þess að taka endanlega afstöðu til framboðanna. Að því búnu mun landskjörstjórn ganga frá lista yfir frambjóðendur til birtingar á vef landskjörstjórnar landskjor.is og vef dómsmálaráðuneytisins kosning.is.