Í nýrri könnun MMR segjast 54,8% þeirra, sem tóku afstöðu ætla greiða atkvæði í kosningunum um stjórnlagaþing. 11,1% sögðust ekki ætla að taka þátt og 34% sögðust ekki hafa ákveðið hvort að þeir tækju þátt.
Þá sögðust 57,4% þeirra sem tóku afstöðu ekki enn hafa kynnt sér neinn þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til stjórnlagaþings.
Samtals tóku 97,6% afstöðu til spurningarinnar um væntanlega þátttöku í kosningum til stjórnlagaþings og 98% tóku afstöðu til spurningarinnar um hvort svarendur hefðu kynnt sér þá einstaklinga sem eru í framboði til stjórnlagaþings. Aðrir svöruðu „veit ekki/vil ekki svara‘‘.