Ástþór skorar á Ólaf

Ástþór Magnússon tilkynnir forsetaframboð 2. mars 2012.
Ástþór Magnússon tilkynnir forsetaframboð 2. mars 2012. mbl.is/Golli

Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi skorar á Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, í kappræður um forsetaembættið. Á vefsíðu sinni segir Ástþór að hann hafi reynt að fá Ólaf til kappræðna frá árinu 2004.

„Ég vil kryfja til mergjar málskotsrétt forseta og hvernig hægt er að virkja Bessastaði með mun öflugri hætti en Ólafur hefur gert á 16 árum,“ segir Ástþór.

Hann vísar til útvarpsviðtals við Ólaf Ragnar þar sem hann sagðist reiðubúinn til að mæta frambjóðendum í kappræðum.

Vefsíða Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert