Kosningamiðstöð forsetaframboðs Herdísar Þorgeirsdóttur verður opnuð á Laugavegi 87 laugardaginn 2. júní nk. Opnunarhátíð hefst kl. 13 á laugardag með ávarpi Herdísar og stendur alla helgina, t.d. með tónlist og upplestri.
Í fréttatilkynningu segir að kosningamiðstöðin verði opin fram að forsetakosningum 30. júní á virkum dögum frá kl. 14 til 18 og um helgar frá kl. 13 til 16.