Þóra Arnórsdóttir ávarpaði rétt í þessu stuðningsmenn sína, en þeir eru samankomnir í Hafnarhúsinu í kvöld. Sagði hún að orð gætu ekki lýst þeirri þakklæti og gleði sem hún fyndi til handa stuðningsmönnum sínum.
Þóra sagði að hver einasti vinur og ættingi hennar hefðu reynst tilbúnir að hjálpa til við framboðið, en jafnframt margir fleiri. Henni þótti ótrúlegt að upplifa það og sjá hversu stórt netið væri. Þóra hvatti stuðningsmenn sína áfram, og sagði að þeim hefði tekist að brjóta blað í Íslandssögunni.