Oddný G. Harðardóttir alþingismaður og þingsflokksformaður Samfylkingarinnar hefur ákveðið að bjóða sig fram í 1. sæti í forvali flokksins fyrir Suðurkjördæmi sem fram fer 16. og 17. nóvember.
Í tilkynningu frá Oddnýju segir að hún hafi tekið að sér mörg krefjandi ábyrgðarstörf á kjörtímabilinu, til dæmis var hún um tíma fjármálaráðherra - fyrst kvenna - og var formaður menntamála- og fjárlaganefndar.
Oddný segist starfa með hag barna að leiðarljósi og leggja áherslu á ábyrga hagstjórn, atvinnumál, nýsköpun og fjölbreytt framboð náms. „Hún tekst á við verkin af heiðarleika, yfirvegun og festu og vinnur að almannahag af dugnaði og hugsjón,“ að því segir í tilkynningu.
Oddný mun opnar kosningaskrifstofu í Reykjanesbæ að Hafnargötu 31, 2. hæð föstudaginn 2. nóvember kl. 17:00. Létt dagskrá og léttar veitingar verða í boði og eru allir velkomnir.