Björt Ólafsdóttir, formaður Geðhjálpar, mun leiða lista Bjartrar framtíðar í Reykjavíkurkjördæmi norður í þingkosningunum í vor. Heiða Kristín Helgadóttir verður í 2. sæti listans.
Listinn var samþykktur af stjórn Bjartrar framtíðar í síðustu viku. Fram hefur komið að Jón Gnarr borgarstjóri vermir 5. sæti framboðslistans í kjördæminu.
Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2.