Fundur kjördæmisráðs Vinstri grænna í Norðvesturkjördæmi fagnar nýsamþykktum framboðslista í kjördæminu. Einnig þakkar hann Jóni Bjarnasyni störf hans í þágu Vinstri grænna í kjördæminu og óskar honum alls hins besta.
„Fundurinn undirstrikar að nú sem aldrei fyrr er þörf á því að róttækur vinstri flokkur hafi styrk til að vinna að áframhaldandi uppbyggingu íslensk velferðarsamfélags,“ segir í tilkynningu en fundurinn fór fram á Hólmavík í dag.
Framboðslisti vinstri grænna í norðvesturkjördæmi.
1. Lilja Rafney Magnúsdóttir
2. Lárus Ástmar Hannesson
3. Þóra Geirlaug Bjartmarsdóttir
4. Matthías Lýðsson
5. Reynir Eyvindsson
6. Valdís Einarsdóttir
7. Trausti Sveinsson
8. Helena María Jónsdóttir Stolzenwald
9. Bjarki Þór Grönfeldt
10. Sigrún Valdimarsdóttir
11. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir
12. J. Brynjólfur H. Ásþórsson
13. Guðrún Margrét Jónsdóttir
14. Helgi Guðmundsson
15. Vigdís Kristjánsdóttir
16. Rögnvaldur Ólafsson