Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, boðaði í dag óvænt til blaðamannafundar í Norræna húsinu. Fundurinn hefst kl. 16.
Í tilkynningu er ekkert látið uppi um tilefni fundarins.
VG heldur landsfund um næstu helgi þar sem línur verða lagðar fyrir kosningabaráttuna framundan og forysta flokksins verður kosin.