Björn Valur Gíslason, þingmaður VG í Norðausturkjördæmi, segir í samtali við Akureyri vikublað að skorað hafi verið á hann að bjóða sig fram til varaformanns á landsfundi VG um næstu helgi. „Ég mun auðvitað taka mark á því og íhuga málið en hef ekki tekið neina ákvörðun sem stendur.“
Björn Valur segir ennfremur að ákvörðun hans muni liggja fyrir á allra næstu dögum.