Framsókn með 30,2% fylgi

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins. mbl.is/Árni Sæberg

Fylgi Framsóknarflokksins mældist nú 30,2%, í nýrri könnun MMR borið saman við 29,5% í síðustu mælingu. Pírataflokkurinn bætir við sig fylgi og mælist nú 7,8%, borið saman við 3,9% í síðustu mælingu. Sjálfstæðisflokkurinn missir áfram fylgi og mælist hann nú 21,2% borið saman við 24,4% í síðustu mælingu.

Fylgi Bjartrar framtíðar dregst nokkuð saman og mælist nú 9,2% borið saman við 12,0% í síðustu mælingu. Stuðningur við önnur framboð ýmist stóð í stað eða breyttist lítillega. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 28,5%. Samfylking mælist með 12,7% og Vinstri hreyfingin grænt framboð með 8,1%.

Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“. Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“.

Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjálfstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2. Samtals voru 83,8% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (5,7%), myndu skila auðu (6,0%), myndu ekki kjósa (2,0%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,5%).

Spurt var: Styður þú ríkisstjórnina? Svarmöguleikar voru: „Já“, „Nei“ og „Veit ekki/Vil ekki svara“ Samtals tóku 84,1% afstöðu til spurningarinnar.

Upplýsingar um framkvæmd:

Úrtak: Einstaklingar á aldrinum 18-67 ára valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 906 einstaklingar á aldrinum 18-67 ára
Dagsetning framkvæmdar: 5. til 8. apríl 2013


MMR
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert