ESB býður Íslendingum náið samráð um fríverslun

Össur Skarphéðinsson ásamt Karel De Gucht.
Össur Skarphéðinsson ásamt Karel De Gucht.

Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra og Karel De Gucht, viðskiptastjóri Evrópusambandsins, bundust í dag fastmælum um að náið samráð yrði haft við Íslendinga í krafti stöðu þeirra sem umsóknarríkis, um hinn stóra viðskiptasamning Evrópusambandsins og Bandaríkjanna sem nú er í undirbúningi.

Fram kemur í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu, að De Gucht hafi sagt að það væri heppilegast að slíkt samráð færi fram á vettvangi reglulegs samráðs hátt settra embættismanna um viðskiptamál sem komið var á fót í tengslum við aðildarviðræður Íslands að Evrópusambandinu. Hann kvað þó skýrt að orði að samningurinn yrði einungis á milli þessara tveggja aðila, Evrópusambandsins og Bandaríkjanna.

„Viðskiptasamningur tveggja stærstu hagkerfa heimsins, Evrópusambandsins og Bandaríkjanna, mun ná til þriðjungs af öllum viðskiptum heimsins. Þær munu snúast um þrjár stoðir: Markaðsaðgang fyrir vöru og þjónustu, gagnkvæma viðurkenningu á stöðlum og samræmdar reglur um hnattræn viðfangsefni. Össur segir mikið hagsmunamál fyrir Íslendinga að komast með þessum hætti að borðinu þar sem hægt væri að undirbúa þátttöku Íslands innan þessa stóra viðskiptasvæðis. Íslensk fyrirtæki og neytendur þyrftu á því að halda að hagsmuna þeirra yrði gætt þegar svo umfangsmikill samningur væri í bígerð.

Ráðherra hefur þegar skrifað til John Kerry utanríkisráðherra Bandaríkjanna um mögulega aðkomu Íslands og tekið málið upp við kollega sinna innan EFTA,“ segir í tilkynningunni.

Þá segir, að Össur hafi í gær átt fund með Gunther Oettinger, orkumálastjóra Evrópusambandsins. Þar hafi komið skýrt fram að Íslendingar muni halda algerlega óskertu eignarhaldi og yfirráðum yfir orkulindum sínum við inngöngu í Evrópusambandið.

„Íslendingar munu ráða því hvaða orkulindir verði nýttar, hvernig þær yrðu nýttar og hvernig við flytjum og dreifum orkunni,“ er haft eftir Össurri. „Þannig getum við nú lagt til hvílu hina lífseigu bábilju um að við munum tapa yfirráðum yfir orkulindum okkar við inngöngu í ESB.“

Þeir Össur og Oettinger ræddu hvernig ESB og Ísland gætu unnið saman að því að auka hlut jarðhitans í Evrópu og boðar Oettinger til sérstakra hingborðsumræðna í Brussel í haust með íslenskum og evrópskum sérfræðingum og fulltrúum fjármálastofnana sem fjármagna orkuframkvæmdir í Evrópu.

Í ferð sinni til Brussel hitti ráðherra einnig Stefan Füle, stækkunarstjóra ESB, og Tonio Borg sem fer með matvælaöryggi og heilbrigðismál í framkvæmdastjórninni

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert