Sjálfstæðisfélagið í Vestmannaeyjum og Eyverjar, félag ungra sjálfstæðismanna í Vestmannaeyjum, hafa sent frá sér fréttatilkynningu um að þeir styðji formann flokksins, Bjarna Benediktsson, til að gegna starfi formanns áfram.
„Bjarni Benediktsson var endurkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins á nýliðnum stærsta landsfundi nokkurs stjórnmálaafls í sögu lýðveldis Íslands. Í fjórgang hefur hann sótt umboð sitt flokksmanna og hvergi brugðist því trausti sem honum hefur verið falið. Hann er með óskorað umboð flokksmanna til forystu þess flokks sem að okkar mati hefur upp á að bjóða skynsamlegustu lausnir á vanda Íslendinga.
Bjarni Benediktsson sýndi ótrúlegan kjark í viðtali við Sjónvarpið fimmtudagskvöldið 11. apríl sl. Hann sýndi þar að hann er einlægur og heiðarlegur maður sem þorir að segja sannleikann. Það dylst engum sem á hann hlustaði að hann er í stjórnmálum til að gera Ísland að betra landi.
Þannig mann viljum við hafa í stjórnmálum. Þannig maður á að vera í stjórnmálum.
Við skorum á Bjarna að halda áfram sem formaður Sjálfstæðisflokksins og verða þannig landi og þjóð áfram að gagni,“ segir í fréttatilkynningu.