Þeir sem ná kjöri í stærsta kjördæmi landsins, Suðvesturkjördæmi í alþingiskosningunum 2013, þurfa til þess 82% fleiri atkvæði en þeir sem ná kjöri í minnsta kjördæmi landsins sem er Norðvesturkjördæmi. Á bak við hvern þingmann SV-kjördæmis eru 4.858 atkvæði, en 2.668 að baki hverju þingsæti NV-kjördæmis.
Munurinn á þessum tveimur kjördæmum hefur minnkað frá alþingiskosningunum 2009, en þá voru rúmlega tvöfalt fleiri kjósendur að baki hverju þingsæti í SV-kjördæmi en í NV-kjördæmi. Síðan þá hefur skiptingu þingsæta verið breytt, þeim hefur fjölgað um eitt í SV-kjördæmi og fækkað um eitt í NV-kjördæmi.
Kjósendur í Suðvesturkjördæmi eru 63.154. Þar eru 13 þingmenn, 11 kjördæmissæti og tvö jöfnunarsæti. Að baki hverju þingsæti eru því 4.858 atkvæði. Í Norðvesturkjördæmi eru 21.340 á kjörskrá. Þar eru átta þingmenn, sjö kjördæmissæti og eitt jöfnunarsæti og að baki hverjum og einum eru því 2.668 atvæði.
Næstfjölmennasta kjördæmið er Reykjavíkurkjördæmi norður, þar sem 45.569 eru á kjörskrá. Litlu færri eru í Reykjavík suður, eða 45.204. 33 fleiri atkvæði eru á bak við hvert þingsæti í Reykjavík norður, eða 4.142 á móti 4.109. 11 þingmenn eru í hvoru kjördæmi fyrir sig, níu kjördæmakjörnir og tveir jöfnunarmenn.
Suðurkjördæmi er fjórða stærsta kjördæmi landsins með 33.641 á kjörskrá. Þar eru tíu þingsæti, níu kjördæmasæti og eitt jöfnunarsæti. Á bak við hvert og eitt eru 3.364 atkvæði.
Norðausturkjördæmi er næstminnsta kjördæmið með 29.049 á kjörskrá. Þar eru tíu þingsæti, níu kjördæmasæti og eitt jöfnunarsæti og 2.905 atkvæði að baki hverju og einu.
Kjósendur að baki hverju þingsæti frá árinu 2003:
Suðvesturkjördæmi:
Norðvesturkjördæmi:
Reykjavíkurkjördæmi suður:
Reykjavíkurkjördæmi norður:
Suðurkjördæmi:
Norðausturkjördæmi:
Alls eru 237.957 á kjörskrá á landinu öllu og hefur þeim fjölgað um 10.114 frá árinu 2009 eða um 4,4%. Fjölgað hefur í öllum kjördæmum, hlutfallslega mest í SV-kjördæmi og minnst í NV-kjördæmi.
<div>Ef atkvæðum á hvert þingsæti væri jafn skipt, þyrfti 3.777 atkvæði á bak við hvert þeirra.
Kosningavefur mbl.is
</div>