Fylgi Sjálfstæðisflokksins er áfram á uppleið ef marka má nýja könnun MMR, það mælist nú 27,5% samanborið við 22,9% í síðustu mælingu. Þar með er Sjálfstæðisflokkurinn með mest fylgi allra flokka en næstur á eftir fylgir Framsóknarflokkur með 25,6% fylgi sem er umtalsvert minna en í síðustu mælingu MMR þegar það var 32,7%.
Stjórnarflokkarnir bæta báðir við sig og mælist Samfylkingin nú með 13,5% fylgi, borið saman við 10,4% í síðustu mælingu og Vinstri græn mælast nú með 8,1% fylgi, borið saman við 6,7%.
Fylgi Bjartrar framtíðar og Pírataflokksins minnkar. Björt framtíð mælist nú með 8,3% fylgi borið saman við 9,5% í síðustu mælingu og Pírataflokkurinn mælist nú með 6,7% fylgi, borið saman við 9,0% í síðustu mælingu. Stuðningur við önnur framboð ýmist stóð í stað eða breyttist lítillega.
Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 26,4%.
86,4% gáfu upp afstöðu til flokka
Könnunin var framkvæmd dagana 17. og 18. apríl. Í úrtaki voru einstaklingar á aldrinum 18-67 ára sem valdir voru handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR. Svarfjöldi var 859 einstaklingar.
Lagðar voru allt að þrjár spurningar fyrir svarendur um stuðning þeirra við stjórnmálaflokka. Allir voru spurðir spurningar 1: „Ef kosið yrði til Alþingis í dag, hvaða flokk myndir þú kjósa?“. Þeir sem svöruðu „Veit ekki/óákveðin(n)“ við spurningu 1 voru því næst spurðir spurningar 2: „En hvaða flokkur yrði líklegast fyrir valinu?“.
Ef aftur var svarað „Veit ekki/óákveðin(n)“ þá voru þátttakendur að lokum spurðir spurningar 3: „Hvort er líklegra að þú kysir Sjálfstæðisflokkinn eða einhvern hinna flokkanna?“. Fjölda þeirra sem svaraði "einhvern hinna" í spurningu 3 var skipt milli annarra flokka en Sjáflstæðisflokksins í sama hlutfalli og fylgi þeirra var skv. spurningum 1 og 2.
Samtals voru 86,4% sem gáfu upp afstöðu til flokka, aðrir kváðust óákveðnir (3,8%), myndu skila auðu (5,5%), myndu ekki kjósa (1,9%) eða vildu ekki gefa upp afstöðu sína (2,3%).
Nánar á vef MMR