Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra og þingmaður VG, gagnrýnir á vef sínum þær árásir sem formaður Framsóknarflokksins, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, hefur orðið fyrir vegna menntunar sinnar.
Á vef sínum segist Ögmundur hafa sínar efasemdir um loforð Framsóknar um skuldamálin, skattamálin, verðtrygginguna, launamál, velferð, örorku, tryggingagjald, lánasjóð námsmanna, Íbúðalánasjóð ... „ekki um málefnin heldur þegar lofað er upp í ermina. Allt á að verða gott, öllum lofað gulli og grænum skógum og síðan allt svikið, jafnvel framkvæmt þvert á það sem lofað var. Þetta þekkjum við allt frá fyrri tíð. Að vísu skal það nefnt - svo Framsókn njóti sannmælis - að sumt efndi hún , eins og stóriðjuáformin, sem nú hafa skilað okkur nær dauðu Lagarfljóti,“ skrifar Ögmundur og bætir við að tala þurfi hreint út og spyrja hvað frambjóðendur raunverulega hyggist fyrir.
Umræða um umbúðir ekki innihald
„En það þarf líka að koma heiðarlega fram gagnvart frambjóðendum. Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, ekkert síður en öðrum. Nú er að nýju hafin herferð gegn honum til að gera menntun hans tortryggilega. Sigmundur Davíð vakti athygli og aðdáun margra þar á meðal mína þegar hann flutti okkur hugmyndir sínar um skipulagsfræði sem hann meðal annars hafði aflað í námi sínu í þessum fræðum í Oxford.
Mig skiptir engu máli - og kemur það ekkert við - hvort hann hafi lokið við ritgerð sína eða ekki enda hef ég alltaf lagt meira upp úr innihaldi náms en formlegum prófgráðum. Spurningin í mínum huga er hverrar þekkingar og færni menn afla sér í námi. Það hafði Sigmundur Davíð sannanlega gert. Og það sem meira er, hann hafði komið þekkingu sinni á framfæri við almenning og þannig miðlað námi sínu á uppbyggilegan hátt, meira en margir prófgráðumenn geta státað af. Síðan er það hitt að algengt er að menn ljúki prófritgerðum löngu eftir að rannsóknarvinnan er innt af hendi. Sjálfur var ég á sínum tíma í doktorsnámi í sagnfræði en ákvað að ljúka því ekki. En menntunin gagnaðist mér engu að síður.
Þetta er umræða um umbúðir en ekki innihald. En þetta fjallar líka um ósæmilegar og ósanngjarnar aðfarir sem ekki eru sæmandi í kosningabaráttu,“ skrifar Ögmundur Jónasson á vef sinn í dag.