„Ég er sannfærður um að við eigum enn meira fylgi inni. Við frambjóðendur finnum að það eru jákvæðir straumar með okkur. Ég er sannfærður um að við munum lyfta okkur enn hærra,“ sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins.
Samfylkingin yrði þriðji stærsti flokkurinn á þingi, fengi níu þingsæti, Vinstri græn kæmu næst með sjö þingsæti, þá Björt framtíð með fimm þingsæti og loks fengju Píratar fjögur þingsæti. Tíu þingmenn næðu ekki endurkjöri. Jöfnunarsæti eru níu og fengju VG og Píratar þrjú sæti hvor flokkur, Björt framtíð tvö og Samfylkingin eitt.
Kosningar fara fram á laugardag.
„Við tölum fyrir raunhæfum, ábyrgum lausnum sem hægt er að hrinda í framkvæmd strax,“ segir Bjarni. „Þær skipta heimilin og atvinnulífið miklu. Það þarf nýja efnahagsstefnu. Ég er mjög bjartsýnn á að niðurstaða kosninganna sýni mikinn stuðning við það að gera breytingar.“
„Ég tel að sífellt fleiri geri sér grein fyrir því að tillögur okkar séu raunhæfar. Og að það sé mjög mikilvægt að ná að nýta þetta einstaka tækifæri vegna þess að það kemur ekki aftur.“
„Við munum minna fólk á að það skiptir miklu að jafnaðarmenn hafi alvöruafl. Sérstaklega þegar glittir í gamaldags helmingaskiptastjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks.“
Spurð um markmið VG í þessum kosningum segir Katrín að Vinstri grænir ætli að gera sitt besta og sjá hvaða árangri það skilar.
„Ég er ánægð með að sjá að þetta sé komið í tveggja stafa tölu. Ég neita því ekki.“
„Ein meginástæða þess að við erum í þessu er að við viljum breyta stjórnmálunum. Okkur finnast þau hafa verið í miklu óefni og stór mál í upplausn. Við vildum gjarnan fá meira fylgi til að geta haft meiri áhrif og við vinnum að því hörðum höndum. Við boðum breytt vinnubrögð í stjórnmálum og vonumst til að fólk vilji þau.“
„Það er ánægjulegt að fylgið skuli vera að mjakast upp. Ég tek stefnuna á 8,8%. Við þurfum að ná fólki inn í öllum kjördæmum,“ segir Birgitta sem segir að hún hefði viljað sjá meiri umfjöllun um litlu framboðin.
Hún kvarti þó ekki undan umfjölluninni sem Píratar hafi fengið. Þá segir hún flokkinn hafa eytt litlu sem engu í auglýsingar, sem sé af hinu góða.