MMR kannaði fylgi stjórnmálaflokka og stuðning við ríkisstjórnina á tímabilinu 22. til 25. apríl 2013. Fylgi Sjálfstæðisflokksins mælist nú 26,7%, borið saman við 27,5% í síðustu mælingu og Framsóknarflokkurinn mælist nú með 22,4% fylgi, borið saman við 25,6% í síðustu mælingu. Þrátt fyrir að munur á fylgi þessara tveggja flokka mælist nú 4,3 prósentustig er sá munur innan vikmarka (miðað við 95% vikmörk) og því ekki hægt að álykta að annar flokkurinn hafi meira raunfylgi en hinn.
Samfylkingin mælst nú með 13,0% fylgi, borið saman við 13,5% í síðustu mælingu og Vinstri græn mælast nú með 11,6% fylgi, borið saman við 8,1%. Björt framtíð mælist nú með 7,7% fylgi borið saman við 8,3% í síðustu mælingu og Pírataflokkurinn mælist nú með 7,5% fylgi, borið saman við 6,7% í síðustu mælingu. Lýðræðisvaktin mælist nú með 3,5% fylgi, Dögun með 2,9% fylgi, Flokkur heimilanna með 1,8% fylgi, Hægri grænir með 1,3% fylgi, Sturla Jónsson með 0,8% fylgi, Regnboginn með 0,5% fylgi, Alþýðufylkingin með 0,1% og Landsbyggðarflokkurinn með 0,2% fylgi. Stuðningur við ríkisstjórnina mælist nú 32,6% en mældist 26,4% í síðustu könnun.
Upplýsingar um framkvæmd:
Úrtak: Einstaklingar 18 ára og eldri*, valdir handahófskennt úr hópi álitsgjafa MMR
Könnunaraðferð: Spurningavagn MMR
Svarfjöldi: 1101 einstaklingar, 18 ára og eldri
Dagsetning framkvæmdar: 22. til 25. apríl 2013