„Okkur líst mjög vel á þetta. Þetta er í mjög góðu samræmi við það sem við vildum og stefndum að núna,“ segir Heiða Kristín Helgadóttir, annar formanna Bjartrar framtíðar, um fyrstu tölur.
„Við erum mjög sátt ef við endum með sex þingmenn. Það er stórsigur fyrir nýjan flokk,“ segir Heiða Kristín.