Sigmundur: „Við gefum okkur tíma“

„Ég bara hef ekki hugmynd um það,“ svaraði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson að loknum fundi með forseta Íslands, aðspurður hvort hann ætti von á því að Ólafur Ragnar veitti honum umboð til að mynda ríkisstjórn. Sigmundur sagði engar formlegar viðræður hafnar við Bjarna Benediktsson né formenn annarra flokka.

„Við hittumst stuttlega í gærkvöldi, til þess fyrst og fremst að ræða þau verkefni sem samfélagið stæði frammi fyrir,“ sagði Sigmundur um fund þeirra Bjarna Benediktssonar í gærkvöld. 

„Það er nú hvorki hægt að kalla þetta formlegar né óformlegar viðræður enda töluðum við lítið um þau mál að öðru leyti en við höfum þegar gert t.d í sjónvarpsþáttum og þar voru áherslurnar þær sömu og þið hafið séð, t.d. áherslur okkar á mikilvægi þessi að hrinda í framkvæmd leiðréttingu lána og Bjarni endurtók það sem hann hefur sagt.“

Sigmundur sagði of snemmt að segja til um það hvort komandi ríkisstjórn yrði stjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, boltinn væri hjá forsetanum núna á meðan hann ræddi við formenn allra flokkanna. „Við bara gefum okkur tíma.“

Eru þá engar formlegar viðræður að fara af stað?

„Nei, nei, engar viðræður, hvorki formlegar né óformlegar, nema menn rekist hver á annan í viðtölum eða annars staðar, ekki nema forsetinn taki af skarið.“

Hann sagði enga frekari fundi hafa verið skipulagða með Sjálfstæðisflokknum að svo stöddu og kannaðist ekki við að þeir Bjarni áformuðu að hittast í kvöld. „Ég veit ekki hvort við erum saman í einhverjum sjóvnarpsþáttum, það getur verið, en við höfum ekki skipulagt fleiri fundi.“

Nú hefur heyrst að formenn fleiri flokka hafi komið að máli við þig. Geturðu sagt okkur eitthvað um það?

„Ef maður fer að játa slíku þá er það oft túlkað sem svo að menn hafi verið í einhverjum viðræðum. Það eina sem hefur gerst er að menn hafa hist á göngum eða verið á sömu stöðum undanfarna daga og velt vöngum yfir stöðunni í samfélaginu en ekkert sem hægt er að kalla ríkisstjórnarviðræður [...] Við Birgitta Jónsdóttir ræddum samvinnufélög og mikilvægi þeirra, svo það hefur verið allur gangur á þessu.“

Hvað fór á milli ykkar forsetans?

„Hann var að velta fyrir sér hver upplifun mín hefði verið af kosningunum og stöðunni í samfélaginu.“

Sigmundur Davíð Gunnlaugssson ræðir við fjölmiðlamenn á Bessastöðum í dag.
Sigmundur Davíð Gunnlaugssson ræðir við fjölmiðlamenn á Bessastöðum í dag. mbl.is/Ómar Óskarsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar, ræðir við fjölmiðlamenn eftir fund …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknar, ræðir við fjölmiðlamenn eftir fund með forseta Íslands. mbl.is/Ómar Óskarsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á fundi með forseta Íslands, Ólafi Ragnar …
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson á fundi með forseta Íslands, Ólafi Ragnar Grímssyni, á Bessastöðum í dag. mbl.is/Golli
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert