Líf Magneudóttir hlaut 66% atkvæða í annað sætið á lista VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor.
Elín Oddný Sigurðardóttir hlaut 31% atkvæða og Birna Magnúsdóttir 3%.
Sex bjóða sig fram í þriðja sætið: Birna Magnúsdóttir, Elín Oddný Sigurðardóttir, Eyrún Eyþórsdóttir, Gísli Garðarsson, Hermann Valsson og Ragnar Karl Jóhannsson.