Sóley Tómasdóttir skipar fyrsta sætið á lista VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Líf Magneudóttir verður í öðru sæti listans og Hermann Valsson í því þriðja.
Í fjórða sæti listans er Eyrún Eyþórsdóttir og í því fimmta Gísli Garðarsson.
Það hefur þurft að kjósa tvisvar um hvert sæti á listanum nema annað sæti en Líf fékk 66% atkvæða í það sæti.
Einungis munaði einu atkvæði á milli Sóleyjar og Lífar í seinni umferðinni um fyrsta sætið á listanum. Grímur Atlason, sem einnig bauð sig fram í fyrsta sætið, hefur ekki gefið kost á sér í önnur sæti á listanum.