Tillaga uppstillinganefndar að framboðslista Samfylkingarinnar og óháðra í Hveragerði til bæjarstjórnarkosninga 2014 var samþykkt einróma á félagsfundi 15. apríl sl. Framboðslistann skipar fólk með fjölbreyttan bakgrunn, menntun og störf. Jafnt kynjahlutfall er á listanum.
Njörður Sigurðsson sagnfræðingur og sviðsstjóri á Þjóðskjalasafni Íslands skipar efsta sæti listans. Í öðru sæti er Viktoría Sif Kristinsdóttir, grunnskólakennari og verkefnastjóri við Grunnskólann í Hveragerði, Guðjón Óskar Kristjánsson bifvélavirki og tónlistarmaður í Hveragerði skipar þriðja sætið og í fjórða sæti er Bjarney Sif Ægisdóttir náms- og starfsráðgjafi við Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Listann skipa:
1. Njörður Sigurðsson, sagnfræðingur
2. Viktoría Sif Kristinsdóttir, grunnskólakennari og verkefnastjóri
3. Guðjón Óskar Kristjánsson, bifvélavirki og tónlistarmaður
4. Bjarney Sif Ægisdóttir, náms- og starfsráðgjafi
5. Walter Fannar Kristjánsson, atvinnubílstjóri
6. Álfhildur E. Þorsteinsdóttir, talmeinafræðingur
7. Davíð Ágúst Davíðsson, innkaupafulltrúi
8. Kristbjörg Erla Hreinsdóttir, viðskiptafræðingur
9. Erla María Gísladóttir, náms- og starfsráðgjafi
10. Gísli Magnússon, rafeindavirki
11. Valdimar Ingvason, húsasmiður
12. Sigurbjört Gunnarsdóttir, heilari
13. Sigurgeir Guðmundsson, sundlaugarvörður
14. Anna Sigríður Egilsdóttir, förðunarfræðingur