Framboðið FÓLKIÐ - í bænum býður nú fram í annað sinn í Garðabæ. Búið er að stilla saman framboðslista sem María Grétarsdóttir bæjarfulltrúi leiðir.
Fram kemur í tilkynningu frá flokkinum að í síðustu sveitarstjórnarkosningum árið 2010 hafi framboðið fengið tæp 16% og verið næst stærsta stjórnmálaaflið í Garðabæ.
María segir í tilkynningu að nú verði hafist handa við að kynna listann og málefnaáherslur framboðsins. Hún sé ánægð með hversu sterkur listinn sé en áhersla hafi verið lögð á að fá fólk úr öllum áttum sem til er í að sameinast um málefni framboðsins.
Framboðslistann skipa:
1. María Grétarsdóttir, bæjarfulltrúi.
2. Ingvar Arnarson, framhaldsskólakennari.
3. Sigríður Finnbjörnsdóttir, hárgreiðslumeistari.
4. Huginn Freyr Þorsteinsson, aðjúnkt og heimspekingur.
5. Kristján Guðmundsson, knattspyrnuþjálfari.
6. Jóhann Ívar Björnsson, nemi.
7. Sigurlaug Viborg, gjaldkeri og fyrrverandi bæjarfulltrúi.
8. Bjartur Máni Sigurðsson, markaðsstjóri.
9. Ólafur Karl Finsen, nemi og knattspyrnumaður.
10. Guðfinna Eyrún Ingjaldsdóttir, MS í stjórnun & stefnumótun.
11. Kristján Gunnarsson, viðskiptafræðingur.
12. Paresh Mandloi, verkfræðingur.
13. Kristján Másson, viðskiptafræðingur.
14. Kristín Harðardóttir, fiskifræðingur.
15. Borgþór Stefánsson, viðskiptafræðingur.
16. Haukur Freyr Agnarsson, flugmaður.
17. Aðalbjörg Karlsdóttir, lyfjatæknir.
18. Sigtryggur Jónsson, framkvæmdastjóri og fyrrverandi hreppsnefndarmaður.
19. Hreiðar Ingi Ársælsson, bílstjóri.
20. Anna Guðný Andersen, MS í stjórnun & stefnumótun.
21. Magnús Karl Pétursson, atvinnurekandi.
22. Sveinbjörg Vilhjálmsdóttir, fv. skólastjóri.