Aðeins eitt framboð barst til kjörstjórnar í Vesturbyggð og hefur framboðsfrestur því verið framlengdur um tvo sólarhringa.
Framboðið sem barst var frá sjálfstæðismönnum og óháðum. Þegar aðeins eitt framboð berst framlengist framboðsfrestur sjálfkrafa um tvo sólarhringa, til 12 á hádegi mánudaginn 12. maí 2014.
Sagt er frá þessu í frétt á bb.is.