Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna, segir framboð til forseta Íslands ekki vera á dagskrá. Henni finnst þó erfitt að útiloka nokkurn skapaðan hlut, hvort sem um er að ræða forsetaframboð eða annað.
Þetta kemur fram í frétt Kjarnans.
Kl. 13.48 í dag höfðu 294 líkað við síðu á Facebook þar sem Katrín er hvött til að bjóða sig fram.